Milestone afskriftir og nýtt eignarhald. Hvar eru gögnin um fyrirtækið sem þú varst að "selja" Birna ?

Af fréttaflutningi um afskriftir Milestone og áframhaldandi eignarhlut fyrrum eiganda þurfum við tafarlaust að sjá rekstraráætlun um framtíðarsýn þeirra bræðra ?

Í ljósi aðkomu þeirra að hruni bankanna og samkrulli við skuldugasta einstakling landsins, er til of mikils mælst að skuldagreiðendur (almenningur) félagsins fái að glugga í þau gögn sem liggja að baki ákvarðana í svo stóru máli og svo miklum afskriftum ?

Við erum nokkur sem viljum gjarnan fá að lesa uppgjörsgögnin, Birna, Árni  og/eða skilanefnd Glitnis. Hvar má finna þau ?

Það er aldrei að vita nema við, í sameiningu, hefðum getað boðið betur og treyst okkur í að reka þetta fyrirtæki á faglegri nótum.

Getur Karl Werners ef til vill verið með kynningu fyrir okkur um framtíðarsýn félagsins OKKAR ?

Hefði ef til vill verið ódýrara fyrir þjóðina að fara fram á gjaldþrot og að taka bú bræðranna til gjaldþrotaskipta ?

Það sjáum við ekki frekar en nokkuð annað sem þið eruð að gera í bönkunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Vignir Einarsson

Sæl  Jónína.

Velkomin aftur, ég er ánægður með að fá þig aftur inn í bloggheimana,og inn í Framsóknarflokkinn.  Vonandi hittumst við þar einhvern tíman á fundi.

Einar Vignir Einarsson, 20.12.2008 kl. 11:29

2 Smámynd: Jónína Benediktsdóttir

Já það er fundur í kvöld sem ég kemst því miður ekki á. En takk fyrir þetta Einar Vignir. Nú þarf að kveðja spilta ímynd flokksins með afgerandi hætti.

Jónína Benediktsdóttir, 20.12.2008 kl. 12:33

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband