Er þetta rétt hjá forsetanum Sigmundur Davíð ?
Við flokksbræður þínir eigum rétt á því að vita hvað fyrir þér vakir ? Af hverju ekki þjóðstjórn með þig sem forsætisráðherra ?
Þú þarft ekkert umboð kjósenda ef þú treystir þér til þess að vera formaður flokksins. Þjóðstjórn er eina vitið fram að kosningum annars er verið að búa spillingunni nýtt bæli.
Ég mótmæli stuningi Framsóknarflokksins við stjórn Samfylkingarinnar sem er í tætlum. Til dæmis hafa Björgvin G og Ingibjörg Sólrún ekki rætt saman síðan í desember samkvæmt mínum heimildum.
Sigmundur Davíð þetta er prófraun á styrk þinn og sjálfstæði gagnvart spilltum öflum úr gamla Kaupþingi; dekurfyrirtæki forsetans og Samfylkingarinnar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:31 | Facebook
Athugasemdir
Sigmundur Davíð hefur með loforði sínu um stuðning við minnihlutastjórn Samfylkingar og Vg fellt sitjandi ríkisstjórn á erfiðustu tímum í sögu þjóðarinnar og þar með unnið skemmdarverk.
Hann hefur líka útilokað Framsókn frá samvinnu við aðra flokka en þessa tvo um langa framtíð.
Pólitíkin er minnug sem fíll.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 27.1.2009 kl. 12:34
Dagurinn er ekki liðinn en ég vona að hann átti sig á þessari stöðu Heimir minn.
Jónína Benediktsdóttir, 27.1.2009 kl. 13:37
Hann áttar sig.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 27.1.2009 kl. 16:15
Heyr, heyr Jónína. Sammála í öllu hér.
Sigurður Sigurðsson, 27.1.2009 kl. 17:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning