The secret....Bréfið sem mér barst....

Það er svo ótrúlegt með lífið að þegar þú síst væntir einhvers þá rúllar svarið við spurningunni upp í hendurnar á þér. Í morgun þegar ég fór útfyrir þægindaramann, óþægilega, leiðinnlega, þá fór ég á netið til þess að leita mér af einhverju sem gæti ýtt mér upp úr þægilegu hjólfari. Þá koma til mín tölvupóstur sem ég birti hér fyrir neðan.

The secret virkaði svo sannarlega hjá mér í morgun því ef það er eitthvað sem ég á erfitt með þá er það að stunda Yoga. Mig vantar boltann, spinninghjólið, skíðin....

Ég get ekki beðið eftir því að þjást í ofvirkni minni innan um allt þetta rólega og yfirvegaða fólk. Þægindaramminn víkkar svo um munar yogahelgina miklu. Nú er lag að koma sér yfir næstu hindrun.

Skráning er hjá Áslaugu í síma 6948475.

Bréfið sem mér barst er þetta:

Heil og sæl.

 Okkur er það sönn ánægja að upplýsa nánar um komu Ashutosh Muni til  Íslands. Hann er einstök sál, hugljómaður maður sem hefur náð ótrúlega langt á leið sinni til aukins andlegs þroska. Hann er munkur sem gefur kærleika sinn skilyrðislaust og allt sem hann kennir. Við erum mjög blessuð að fá að njóta nærveru hans þessa helgi 14. - 16. mars.

  

Dagskrá:

 

Föstudagur 14. mars:    

 

18.00 19.00 húsið opnar - skráning

 

19.00 21.30 fyrirlestur með Ashutosh Muni

 

 

 

Laugardagur 15. mars:   

 

06.30 07.00 Arati

 

07.00 08.00 jóga

 

09.00 13.00 fyrirlestur með Ashutosh Muni

 

13.00 14.00 hádegismatur

 

14.00 18.00 fræðsla með Ashutosh Muni

 

19.00 21.30 Satsang, samvera í söng og dansi

 

 

 

Allir velkomnir á Satsang

 

Vinsamlega sendið póstinn áfram til þeirra sem hugsanlega hafa áhuga

 

kær kveðja

 

Undirbúningshópurinn

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband